Skólinn

Ég er sek um að vera arfaslakur bloggari.. allavega þessa dagana.  Ég hef reyndar mjög góða afsökun, skóli. Það nær engri átt hvað það er fáranlega mikið að gera! Ég hlæ af 6 vikna stúdentsprófatímabilinu í MR, ekkert miðað við þetta.  Ég svaf í 27 tíma á tveimur dögum síðustu helgi og hef varla getað borðað heila máltíð í 2 vikur út af stressi.  I rest my case. Shocking

 

Annars er ég búin að finna hvar myndarlegu mennirnir og drengir  í Ungverjalandi fela sig ! Á hárgreiðslustofum! Þar eru þeir!!  og NB! þeir klæðast EKKI smekkbuxum... stóóór plús! Wink  Reyndar eru myndarlegir menn út um allt þessa dagana! Ætli það sé sumarið??  Ekki skemmir fyrir að það fer að styttast í heimkomu! einungis 7 vikur eftir (ef allt fer eftir áætlun)! Mér finnst ég hafa komið í gær! Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða.  Áður en ég veit af mun ég vera stödd upp í brekku, með góðgæti í brúsa og trallandi við sönginn hans Árna Johnsens! get ekki beðið!!

 

 

 

Yndislegt...  

Ég er ekki ennþá komin með vinnu í sumar en hef nú sótt um á nokkrum stöðum... Áhugaverðast fannst mér: Aðstoðadýrahirðir í Fjölskyldu-og dýragarðinum! Fulllkomið starf !! W00t Annars starfa ég bara sem sjálfstæður götusópari! Tounge

Þar sem þessi strumpapróf eru gríðarvinsæl á netheimnum ákvað ég að athuga hvaða strumpur ég væri.  Ég ljós kom að ég er tvískiptur persónuleiki...

 

Papa_Smurf

 

 

Hefty_Smurf

 

Það er kannski eitthvað til í þessu..... ?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Báðar lýsingarnar eiga vel við mína ástkæru dóttur, heldur betur. '

Ég hefði gjarnan viljað sjá bróður þinn taka sama próf, þú bara verður að fá hann til að taka prófið og birta niðurstöður hér

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.4.2008 kl. 23:50

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

P.S fara Ungverjar ekki í stuttbuxur eins og aðrir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.4.2008 kl. 23:51

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gott að heyra hvað þu ert hress elsku keddlingin mín....komdu bara á Heilsuverndarstöðina.

Hólmdís Hjartardóttir, 13.4.2008 kl. 02:03

4 Smámynd: Katrín

á hárgreiðslustofum Ég þarf einmitt að fara í klippingu

Hafðu sem best í 20 stiga hitanum litla frænka og gangi þér vel með lesturinn. Kveðjur til Haffa

Katrín, 13.4.2008 kl. 07:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband